Sarkozy ætlar í mál við vefsíðu

Skoðanakannanir benda til þess að Nicolas Sarkozy muni bíða lægri hlut í síðari umferð frönsku forsetakosninganna á sunnudag. Mynd: AFP.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, ætlar í mál við vefmiðil sem staðhæfir að árið 2007 hafi Múammar Gaddafi, sem þá var einræðisherra í Líbíu, samþykkt að gefa fimmtíu milljónir evra í kosningasjóð Sarkozys.
Vefsíðan Mediapart segist hafa undir höndum skjal sem sanni þetta en Sarkozy segir skjalið falsað. Nokkur harka hefur færst í baráttuna fyrir frönsku forsetakosningarnar sem fara fram á sunnudag.
Samkvæmt skoðanakönnum sem var birt í gær hefur sósíalistinn Francois Hollande, keppinautur Sarkozys, 53 prósenta fylgi en hægrimaðurinn Sarkozy 47 prósent.
Búist er við að kosningabaráttan muni skyggja á hátíðahöld í tilefni baráttudags verkalýðsins í dag. Sarkozy ætlar að halda kosningafund í París og tala um gildi vinnu, eins og það er orðað.
Marine Le Pen, sem er yst á hægri væng stjórnmálanna ætlar að halda sinn eigin fund í dag til minningar um Jóhönnu af Örk, sem er höfð í hávegum meðal liðsmanna Þjóðfylkingar Le Pen. Le Pen datt út í fyrstu umferð kosninganna 22. apríl, en fékk nær fimmtung atkvæða. Búist er við að hún muni hvetja stuðningsmenn sína til að sitja heima og spara atkvæði sín þar til í þingkosningum í júní.
Á morgun mætast Hollande og Sarkozy í sjónvarpskappræðum. Stjórnmálaskýrendur segja að þar geti verið síðasta tækifæri Sarkozys til að slá í gegn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














