Santorum heillar íhaldsmenn
Fyrst birt: 10.02.2012 17:59, Síðast uppfært: 10.02.2012 19:37

Rick Santorum. Mynd:AFP
Rick Santorum hvatti íhaldsmenn í Repúblikanaflokknum til dáða þegar hann ávarpaði ráðstefnu þeirra í Washington í dag. Santorum kvaðst þess fullviss að hann geti borið sigurorð af Barack Obama forseta í haust.
Santorum er á mikilli siglingu en hann höfðar meðal annars til íhaldsmanna með harðri andstöðu sinni við fóstureyðingar. Santorum notaði tækifærið hér á þessari stóru ráðstefnu til að senda keppinauti sínum Mitt Romney tóninn. Peningaaustur væri ekki lykillinn að sigri í kosningum heldur sannfæring og trú á gildi íhaldsmanna. Nokkuð sem mörgum í þessum kjósendahópi finnst að skorti hjá Romney.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








