Samstaða óhress með Samstöðu

Stéttarfélagið Samstaða er óhresst með nafnaval Lilju Mósesdóttur á stjórnmálaflokki hennar

Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslu er óhresst með að flokkur Lilju Mósesdóttur, sem kynntur var til sögunnar í vikunni, skuli bera sama nafn og stéttarfélagið.

Á heimasíðu þess segir að þótt nafnið sé ekki lögverndað þá hljóti að vera hægt í svo myndauðugu máli sem íslenskan er að velja sér nafn á stjórnmálahreyfingu sem ekki er tekið frá starfandi félagasamtökum. Bendir stéttarfélagið á að félagið hafi verið stofnað fyrir 15 árum og borið þetta nafn allar götur síðan.

Heimasíða stéttarfélagsins

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku