Samstaða nýtur 21% fylgis
Fyrst birt: 10.02.2012 10:33, Síðast uppfært: 10.02.2012 10:33

Samstaða, nýr stjórnmálaflokkur undir forystu Lilju Mósesdóttur, fær fylgi 21% þeirra sem taka afstöðu í nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö. Tæplega helmingur þátttakenda, 47%, af 800 manna úrtaki, tók ekki afstöðu í fylgiskönnuninni.
Ríkisstjórnarflokkarnir fá samtals rúmlega 20% fylgi; Samfylkingin12,3%, en Vinstri hreyfingin grænt framboð 8%. Sjálfstæðisflokkurinn fær 35% fylgi, Framsóknarflokkurinn 12,5% og Björt framtíð rúmlega 6%. Önnur framboð fá minna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








