Samningur Tryggva ekki endurnýjaður

Tryggvi Guðmundsson fagnar eftir að hann sló markamet efstu deildar með marki sem hann skoraði á Hásteinsvelli gegn Stjörnunni fyrr í sumar. Mynd: Sighvatur Jónsson
Markakóngurinn Tryggvi Guðmundsson hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV. Formaður knattspyrnudeildar segir að samningur við leikmanninn verði ekki endurnýjaður.
Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar karla hjá ÍBV, segir að hann og Tryggvi Guðmundsson eigi ekki lengur samleið. Hann á ekki von á því að Tryggvi leiki meira með ÍBV á tímabilinu vegna agabrota leikmannsins.
Tryggvi Guðmundsson og Eyþór Helgi Birgisson tóku ekki þátt í 2-0 sigri félaga sinna á KR í gær þar sem þeir virtu ekki áfengisbann á Þjóðhátíð. Í gærkvöldi rifti ÍBV samningi við Eyþór Helga. Óskar Örn segir að gerður hafi verið skriflegur samningur við Eyþór Helga eftir agabrot fyrr í sumar þess efnis að endurtekin agabrot myndu leiða til riftunar samnings. Hann segir að þessi vinnuregla hafi ekki verið tekin upp fyrr en eftir að Tryggvi varð vís að agabroti fyrr í vor, þegar hann fór í áfengismeðferð í kjölfar ölvunaraksturs.
Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, segir að nokkrir leikmenn hafi brotið agareglur fyrir tímabilið og þeir séu flestir farnir frá félaginu eða verið lánaðir annað. Aðspurður hvort hann vilji að Tryggvi spili meira með liðinu í sumar segir hann: „Ég vil að Tryggvi Guðmundsson spili fótbolta en á meðan hann hagar sér svona og fer ekki eftir reglum er það mitt að meta það.“ Magnús segist að svo stöddu ekki vilji gefa frekar upp um framtíð Tryggva.
Óskar Örn, formaður knattspyrnudeildar, segist ekkert frekar eiga von á því að Tryggvi leiki meira með ÍBV á tímabilinu. Aðspurður um hvort samningur Tryggva verði endurnýjaður segir hann: „Ég held að ég og Tryggvi eigum ekki samleið áfram eftir okkar viðskipti á þessu ári.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












