Samlíf mörgæsa vakti hneykslun

Náttúruminjasafn Breta hefur birt rannsóknir á samlífi mörgæsa. Þær höfðu legið í þagnargildi í rúmlega hundrað ár. Ýmislegt í rannsóknum Georgs Levick, sem var einn leiðangursmanna Robert Scotts á Suðurskautslandið 1910, þótti svo hneykslanlegt að það var fjarlægt úr opinberum skjölum.
Meðal þess sem Levick skráði hjá sér voru lýsingar á kynferðislegri þvingun sem sjá mætti hjá mörgæsunum og því þegar steggir lögðust á dauðar kollur. Sjálfum þótti honum þessi hegðun svo úrkynjuð að hann skráði lýsingarnar á grísku í feltbókina. Eftir að hann sneri aftur til Bretlands frá Suðurskautslandinu reyndi hann að fá birtar athuganir sínar á atferli og hegðun mörgæsanna en þær lýsingar gengu svo fram af kollegum hans að þær voru aldrei gefnar út. 100 eintökum var dreift meðal útvalinna vísindamanna. Tvö þeirra eru enn til.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













