Margt í boði um helgina



  • Prenta
  • Senda frétt

Hrútaþukl, Menningarnótt og Danskir dagar.

 

Það verður mikið um að vera á landinu um helgina og þar ber hæst menningarnóttin í höfuðborginni. Samfélagið í Nærmynd fékk til sín góða gesti í Efstaleitið og slóu síðan á þráðinn vestur í Stykkishólm og heyrðu í bæjarstjóranum Gyðu Steinsdóttur og fengu fréttir þaðan og af dönskum dögum sem haldnir verða um helgina. Rætt var líka við  Esther Sigfúsdóttur frá Sauðfjársetri á Stöndum en Íslandsmeistaramótið í hrútaþukli verður haldið þar um helgina. Benóný Ægisson leikstjóri og forsvarsmaður Lýðveldisleikhússins kom í þáttinn  en hann er höfundur nýs söngleiks sem verður sýndur í Gamla Bíó á morgun og ber heitið Dansinn í Hruni. Kristján Hreinsson, skáld og golfari mætti fyrstur í hljóðstofu en Kristján hefur samið 13 sonnettur með tónlist eftir Þorvald Gylfason, prófessor í hagfræði, og hann sagði  líka frá lagaleiðangri Ingibjargar Þorbergs sem verður í boði á Menningarnótt.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku