Íslenskunámið vinsælt
Fyrst birt: 09.02.2012 11:37, Síðast uppfært: 10.02.2012 14:44

Stór hluti þeirra nemenda sem hafa útskrifast úr íslensku er fremstu þýðendur ísl. bókmennta á erlendar tungur
Árlega stunda yfir tvö hundruð nemendur víðsvegar að úr heiminum nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Hluti þeirra ílengist hér að loknu námi, aðrir halda aftur utan en í báðum tilvikum er algengt að námsárin hafi margháttuð áhrif á framtíð nemenda; íslenskan verður þeirra annað líf. Í hópi útskrifaðra nemenda eru t.d. margir af fremstu þýðendum íslenskra bókmennta á erlendar tungur en einnig fólk sem hefur haslað sér völl víða í íslensku samfélagi. Samfélagið í Nærmynd ræddi við Ingrid Kuhlman hjá Þekkingamiðlun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






