Hetjan Matthildur



  • Prenta
  • Senda frétt

Matthildur Haraldsdóttir fæddist í Salzburg í Austurríki í desember árið 2009. Nokkrum klukkustundum eftir fæðingu kom í ljós að hún er með afar sjaldgæfan og flókinn hjartagalla og hefur hún þurft að gangast undir margar erfiðar hjartaaðgerðir á sinni stuttu ævi nú síðast í júlí og ágúst.

Foreldrar hennar, tónlistarfólkið Harpa Þorvaldsdóttir og Haraldur Ægir Guðmundsson dvelja nú hjá Matthildi á Herz zentrum sjúkrahúsinu í München en ekki er vitað hversu lengi þau munu koma til með að þurfa að dvelja þar. Matthildur er nú undir stöðugu eftirliti lækna eftir átök síðustu vikna og ljóst er að bataferlið getur tekið langan tíma. Harpa er nýútskrifuð úr Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg en Haraldur starfar sem kontrabassaleikari og húsamálari. Auk þess eiga þau dótturina Halldóru Björgu, 8 ára. Vinir hjónanna efna til þessara tónleika til þess að styðja við bakið á ungu fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. Flytjendurnir koma úr mismunandi áttum tónlistarbransans og mega gestir því eiga von á skemmtilegri blöndu tónlistaratriða. Listi yfir flytjendur og nánari upplýsingar koma inn síðar í dag. Miðaverð er miðað við 2000 krónur en framlög eru að sjálfsögðu frjáls.

Þeim sem sjá sér ekki fært um að mæta á tónleikana en vilja styðja við fjölskylduna, er bent á eftirfarandi reikningsnúmer.

Landsbanki Íslands
0159-05-403600
Kt:160580-5429

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku