Sambía Afríkumeistari í fyrsta sinn

Leikmenn Sambíu fagna fyrsta Afríkumeistaratitlinum

Sambía tryggði sér í kvöld Afríkumeistaratitilinn í knattspyrnu í fyrsta skipti þegar liðið sigraði Fílabeinsströndina í vítaspyrnukeppni í úrslitaviðureigninni.

Markalaust var eftir venjulegan leiktíma en Didier Drogba, leikmaður Fílabeinsstrandarinnar, misnotaði vítaspyrnu tuttugu mínútum fyrir leikslok. Hvorugu liði tókst heldur að gera út um leikinn í framlengingu svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Þar reyndist Sambía sterkari og skoraði úr átta spyrnum gegn sjö spyrnum Fílabeinsstrandarinnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku