Sagðir skjóta menn sem gáfust upp

Flokkar: Afríka, Erlent
Efnt var til mótmæla á miðvikudag vegna framgöngu lögreglu þegar skotið var á námuverkamenn í verkfalli. Mynd: Nordic Photos/AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Sjónarvottar að uppþotum við platínunámu í Suður-Afríku í fyrri mánuði fullyrða að sumir námamannanna sem þar féllu fyrir kúlum lögreglu hafi reynt að gefast upp. Mannréttindasamtök sem hafið hafa óháða rannsókn á málinu saka lögregluna um að reyna að hylma yfir þátt sinn í drápunum.

34 létu lífið og 78 særðust þegar lögregla skaut á mótmælafund verkamanna við platínunámu í bænum Marikana, nærri Jóhannesarborg, fyrir tæpum mánuði. Mennirnir höfðu krafist bættra kjara og farið í verkfall til að knýja á um kröfur sínar. Til átaka hafði komið á milli þeirra og lögreglu áður en upp úr sauð með þessum hörmulegu afleiðingum.

Suðurafrísku mannréttindasamtökin Legal Resource Center, sem rannsaka nú aðdraganda drápanna, segja að sjónarvottum beri saman um skotið hafi verið á verkamenn sem ýmist reyndu að gefast upp eða reyndu að komast hjá því að lenda í átökum. Þá segjast samtökin hafa gögn undir höndum sem benda til að lögreglumenn hafi reynt að hylma yfir þátt sinn í drápunum.

Talsmaður annarra mannréttindasamtaka, sem al-Jazeera fréttastöðin ræddi við í dag, telur að ef fótur sé fyrir þessum ásökunum þýði það að lögregla hafi frekar verið í hefndarhug en að ætla koma í veg fyrir uppþot. Dauði námamannanna hefur vakið upp mikla reiði og sárar minningar landsmanna enda þykir framganga lögreglunnar minna á aðfarirnar við að berja niður andóf blökkumanna á tímum aðskilnaðarstefnunnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku