Rúrik skoraði í sigri OB

Rúrik Gíslason skoraði fyrra mark OB í kvöld


  • Prenta
  • Senda frétt

Rúrik Gíslason skoraði fyrir OB sem vann SønderjyskE 2-1 á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Rúrik, sem lék allan leikinn fyrir OB, skoraði fyrra mark liðsins á 24. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik. OB jók forskorið í 2-0 á 51. mínútu en SønderjyskE minnkaði muninn í 2-1 fimm mínútum síðar og þar við sat. Eyjólfur Héðinsson var allan tímann á varamannabekk SönderjyskE en Hallgrímur Jónasson var ekki í leikmannahóp liðsins.

OB situr í öðru sæti með 13 stig  eftir sex leiki en SønderjyskE er í sjötta sæti með 10 stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku