Rufu ekki friðhelgi Assange

Heimildarmyndin True Stories: Wikileaks - Secrets and Lies rauf ekki friðhelgi einkalífs Julian Assange þegar hún sýndi myndband af forsvarsmanni Wikileaks dansa á reykvískum næturklúbbi. Fjölmiðlaeftirlitið í Bretlandi komst að þessari niðurstöðu í dag.
Vefur breska blaðsins Guardian greinir frá þessu. Heimildarmyndin var sýnd í nóvember 2011 og þar mátti sjá Assange stíga dans við taktfasta tóna á skemmtistaðnum Glaumbar. Myndbandið fór sem eldur í sinu um netheima og áhugasamir geta séð það á myndbandavefnum You Tube. 717 þúsund hafa skoðað það,
Assange kvartaði til Ofcom, sem er fjölmiðlavaktin í Bretlandi, um að framleiðendur myndarinnar, More4, hefðu rofið friðhelgi einkalífs hans með því að sýna umrætt myndband. Sjónvarpsstöðin Channel 4 sýndi myndina sem er hluti af heimildarmyndaþáttaröðinni True Stories og lögðu blaðamenn Guardian meðal annars til efni. Assange hefur áður kvartað yfir fjölmiðlaumfjöllun í Bretlandi en hann hefur nú aðsetur í sendiráði Ekvador þar sem hann hefur sótt um hæli.
Ofcom komst að þeirri niðurstöðu að myndbandið hefði verið tekið upp á opinberum stað. Hins vegar bendir Ofcom á að Assange taldi sig hafa gefið tökumanninum leyfi til að taka upp dansinn en þá eingöngu til eiga sjálfur upptökuna, ekki til að dreifa henni. Aftur á móti hafi Assange verið að dansa á opinberum stað og athafnir hans þar geti ekki flokkast sem hans einkamál. Þá bendir Ofcom á að Assange sé opinber persóna sem mikið hafi verið fjallað um og þá hafi umrædd upptaka verið umheiminum aðgengileg á vefnum. Því geti fjölmiðlanefndin ekki fallist á kvörtun Assange.
Assange skrifaði í apríl til Leveson-nefndarinnar þar sem hann sagðist hafa orðið fyrir viðlíka meiðyrðum af hálfu fjölmiðla og Gerry og Kate McCann, foreldrar Madelaine McCann, sem hvarf sporlaust fyrir nokkrum árum. Þau fengu umtalsverðar fjárhæðir frá nokkrum fjölmiðlum fyrir umfjöllun sína um það mál.
Þá tapaði Assange nýverið máli hjá siðanefnd blaðamanna í Bretlandi vegna umfjöllunar Guardian , Independent og annarra blaða en Assange hélt því fram að 45 greinar sem blöðin birtu hefðu verið ónákvæmar og ósanngjarnar. Siðanefndin féllst ekki á kröfur Assange.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














