Rúðurnar í stýrishúsinu splundruðust

Mynd: Hjalti Stefánsson.
Flutningabílstjóri slapp með skrekkinn þegar stór aurskriða lokaði veginum um Þvottárskriður, milli Lónsfjarðar og Álftafjarðar, í nótt. Grjót fór í gegnum stýrishúsið og rúður brotnuðu. Verið er að ljúka við að ryðja veginn.
Skriðan féll líklega um klukkan fjögur í nótt en þá var afar slæmt veður, rok og rigning. Flutningabílstjóri á leið til Egilsstaða kom fyrstur að skriðunni. Honum leist ekki á aðstæður og hugðist snúa bíl sínum við en þurfti til þess að taka tengivagninn aftan úr. Meðan hann var að því splundruðust tvær rúður í bílnum. Svo virðist sem steinn hafi farið inn um rúðuna bílstjóramegin og út farþegamegin. Bílstjórann sakaði ekki. Hann komst hvergi en beið við skriðuna í nótt ásamt fleiri vegfarendum sem ekki komust leiðar sinnar fyrr en starfsmönnum Vegagerðarinnar tókst að hafa sig í gegnum skriðuna í morgun. Þorleifur Ólsen var á hjólaskóflunni og var byrjaður að moka um klukkan sjö í morgun. „Þetta var bara stór malarhaugur á veginum, 3,5 til fjórir metrar á hæð og sjálfsagt um 60 eða 70 metra breiður."
Það gekk betur en menn þorðu að vona að ryðja veginn og fyrstu bílarnir fóru í gegn um klukkan tíu. Fleiri skriður hafa ekki fallið en skriðuföll eru tíð á þessum slóðum.
„Ég sá aðeins í birtingunni að það kom smá spýja niður en það fór ekki niður á veg heldur hrúgaðist bara þarna upp," segir Þorleifur. Þetta er mold, möl og drulla sem skríður af stað en líka grjót sem getur verið mjög hættulegt. „Það geta komið stórir steinar rúllandi niður úr gilinu svo það er vissara að fara varlega hér," segir Þorleifur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Búið að opna veginn
Stærðarinnar skriða lokar veginum




