Romney vill hreinsa til í Washington

Mitt Romney. Mynd: Nordic Photos/AFP

Mitt Romney lofaði því að hreinsa til í stjórnkerfinu í Washington þegar hann ávarpaði ráðstefnu íhaldsmanna í höfuðborginni í gær. Romney lagði mikla áherslu á að sannfæra áheyrendur sina að hann væri íhaldsmaður inn að beini.

Romney sagði að sjónarmið sín og annarra íhaldsmanna væru í samræmi við inntak bandarísku stjórnarskrárinnar um einstaklingsfrelsi og sem minnst afskipti stjórnvalda. Hann sagðist vera alinn upp á heimili þar sem hefðbundin íhaldsgildi hefðu verið höfð að leiðarljósi og hefði hagað sér í samræmi við það á ferli sínum í atvinnulífinu og sem ríkisstjóri Massachusetts.

Íhaldsmenn vantreysta þó margir því að Romney sé sá sem hann segist vera að þessu leyti. Það hefur komið honum í koll í forkosningum þó Romney sé enn sigurstrangastur þeirra sem berjast um að verða forsetaefni Repúblikana. Romney benti á að hann hefði aldrei verið hluti af stjórnmálakerfinu í Washington og þegar hann kæmist í Hvíta húsið yrði tekið til hendinni í höfuðborginni.

Keppinautur Romneys,  Newt Gingrich, ávarpaði líka þessa samkomu íhaldsmanna og sagðist vera rétti maðurinn til að tryggja sjónarmiðum þeirra framgang. Í dag verður tilkynnt um úrslit á svokölluðum kjörfundum í Maine-ríki sem flokksmenn hafa sótt í vikunni til að velja þann sem þeir vilja að mæti Barack Obama í haust.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku