Kate Bush og nýja platan.

Kate Bush er mögnuð, kom síðast fram á tónleikum 2002, eina tónleikaferð hennar var 1979 og hún sendi síðast frá sér plötu með nýju efni 2005. Þá voru liðin 12 ár frá síðustu plötu.

Þrátt fyrir allt þetta skiptir hún enn miklu máli og nýja platan hennar, 50 Words For Snow hefur fengið frábæra dóma. Ekki að ástæðulausu eins og heyra má í þessum þætti þar sem Ólafur Páll skautar líka yfir feril Kate Bush.

Í þættinum býður hann líka upp á nokkur lög frá "I-tunes holiday session" með bandarísku rokksveitinni My Morning Jacket. Þeir spila klassíska jólaslagara, ný frumsamin lög og jólalag eftir The Band. Svo er það James Taylor, hann kemur lítillega við sögu en hann ætlar að syngja í Hörpu í maí, það var tilkynnt núna á föstudaginn. Við heyrum líka aðeins í vinkonu hans Carole King, lög af plötunni A Holiday Carole sem hún var að senda frá sér. 

Kate Bush / Running up that hill
Kate Bush / Snowflake
Kate Bush / 50 words for snow
Kate Bush / The man with the child in his eyes
Kate Bush / Wuthering heights
Kate Bush / Sat in your lap
Kate Bush / Hounds of love
Kate Bush / A coral room
Kate Bush / Wild man
Kate Bush / Among angels
James Taylor / Sweet baby James
James Taylor / The river
Carole King / My favorite things
Carole King / Do you hear what i hear
My Morning Jacket / Have yourself a merry little christmas
My Morning Jacket / Wonderful (The way i feel)
My Morning Jacket / When the bells start ringing
My Morning Jacket / Christmas must be tonight
My Morning Jacket / Welcome home
My Morning Jacket / Please come home fro Christmas
Bob Dylan / I´ll be home for christmas
Getraunalagið

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Rokkland

Tilkynna um bilaða upptöku