Rithöfundar til varnar fréttamönnum

Meðal þeirra sem undirrita yfirlýsinguna er perúski rithöfundurinn Mario Vargas Llosa.

170 skáld og rithöfundar, þar af 7 Nóbelsverðlaunahafar, undirrita yfirlýsingu PEN, alþjóðasamtaka rithöfunda, þar sem morðárásir á blaða- og fréttamenn í Mexíkó eru fordæmdar. Yfirlýsingin er birt sem heilsíðuauglýsing í dagblaðinu El Universal í Mexíkó í dag.

67 blaða- og fréttamenn hafa verið myrtir í Mexíkó frá aldamótum. Langflestir af liðsmönnum glæpasamtaka. Í yfirlýsingunni er þess krafist að stjórnvöld láti sitja fyrir að hafa hendur í hári þeirra sem ofsæki og myrði þá sem miðli upplýsingum til almennings í Mexíkó, og reyni með því að þagga niður í þeim sem flytji sannar fregnir af glæpum og spillingu í landinu.

Meðal þeirra sem undirrita yfirlýsinguna eru John Maxwell Coetzee, Nadine Gordimer, Toni Morrison, Orhan Pamuk, Wole Soyinka, Mario Vargas Llosa og Derek Walcott, allt Nóbelsverðlaunahafar í bókmenntum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka