Risaframkvæmd á Selfossi

Um hundrað manns fá vinnu í nýrri verslunar- og þjónustumiðstöð, sem verður byggð á gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Heildarkostnaður við verkið er um þrír og hálfur milljarður króna, sem lífeyrissjóðirnir og bankarnir munu fjármagna.

„Miðja Suðurlands“ er heiti á nýrri fjórtán til átján þúsund fermetra verslunar- og þjónustumiðstöð, sem mun rísa á gatnamótum Suðurlands- og Biskupstungnabrautar. Verkefnið kostar um þrjá og hálfan milljarð og mun fjármagn koma frá lífeyrissjóðum og bönkum í verkefnið.

Það er fyrirtækið Gatnamót ehf, sem stendur að  verkefninu og ætla sér að ljúka því á næstu árum þannig að hægt verði að opna nýju verslunar- og þjónustumiðstöðina árið 2015.

Á staðnum verður einnig bensínstöð. 

Árni og Hallgrímur Óskarsson, verkfræðingur í Ölfusi sjá um undirbúningsvinnu gangvart lífeyrissjóðnum, bönkunum öðrum samstarfsaðilum, sem munu fjármagna verkefnið, sem áætlað er að kosti 3,5 milljarð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku