Reyndu að stöðva The Master

Flokkar: Erlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Forrystumenn Vísindakirkjunnar umdeildu reyndu af öllum mætti að stöðva framleiðslu kvikmyndarinnar The Master eftir Paul Thomas Anderson. Myndin vann til tvennra verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir skömmu en hún segir af sérvitrum forstöðumanni trúarsafnaðar.

Söguþráður myndarinnar er sagður innblásin af því hvernig Vísindakirkjan var stofnuð og leikstjóri myndarinnar viðurkenndi á blaðamannafundi í Feneyjum að fyrirmyndin að einni aðalpersónu The Master væri fengin frá stofnanda kirkjunnar, Ron Hubbard.

Harvey Weinstein,framleiðandi The Master, sagði við fréttavef BBC að talsmenn Vísindakirkjunnar í Los Angeles hefðu varað hann við að gera myndina og reynt, eftir fremsta megni, að leggja stein í götu hennar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku