Reyndi að brosa til Breiviks

Hér má horfa á ítarlegt viðtal við Eirin Kristin Kjær.


  • Prenta
  • Senda frétt

Eirin Kristin Kjær, norsk stúlka sem helsærðist í skotárásinni í Útey í fyrrasumar, dvelur nú á Höfn í Hornafirði. Hún segist ekki geta verið reið út í fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik jafnvel þó hann hafi skotið hana fjórum skotum.

Eirin segist hafa verið mjög kvíðin að mæta fjöldamorðingjanum á ný í réttarhöldunum í Ósló en það hafi síðan reynst mikill léttir. Hún býr í Tromsö en hennar annað heimili er á Höfn eftir að hún var þar skiptinemi heilan vetur. Hún heldur enn góðu sambandi við fósturfjölskyldu sína og er komin til landsins í heimsókn í annað sinn eftir skotárasina síðasta sumar. Martröðin í Útey er enn ljóslifandi í huga hennar: ,,Það kom skot í magann á mér og ég fór að hlaupa niður brekku og meðan ég var að hlaupa kom skot í handlegginn á mér,“ segir Eirin. Breivik notaði sprengjukúlur og hún segist heppin að kúlan fór ekki í handleggsbeinið því þá hefði handleggurinn farið af. Hún er ennþá með kúlnabrot í kviðarholinu og í fætinum.

„Vinir mínir voru dánir en ég skildi það ekki. Ég fór ekki að gráta fyrr en í desember. Kannski grét ég í eina viku og svo kom vika þar sem erfitt var að komast fram úr rúminu.“ Hún fylgdist grannt með réttarhöldunum og segir gott að hafa fengið upplýsingar í gegnum þau. Hún þurfti sjálf að bera vitni og mæta morðingjanum.  „Ég get ekki verið reið út í hann; mig langar að vera það en ég get ekki sett saman það sem gerðist og þennan mann sem er í réttahöldunum klæddur í flott föt. Þegar ég var í Ósló og sá hann í fyrsta skipti eftir þetta horfðum við á hvort annað. Ég brosti til hans en fékk bara steinandlit til baka,“ segir Eirin.

Hér á vefnum má horfa á ítarlegt viðtal Rúnars Snæs Reynissonar við Eirin sem tekið var á heimili Birnu Skarphéðinsdóttur „fósturmóður“ Eirinar á Höfn í Hornafirði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku