Reykræstu og hugguðu hund-Myndskeið

Slökkviliðsmenn hugsuðu vel um heimilishundinn á meðan á reykræstingu stóð. Mynd: Sighvatur Jónsson


  • Prenta
  • Senda frétt

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað að íbúðarhúsi við Faxastíg rétt fyrir klukkan átta í morgun. Reykur kom upp í eldhúsi íbúðarinnar en enginn eldur kviknaði. Ekki urðu meiðsl á fólki og tók það slökkvilið skamma stund að reykræsta íbúðina sem er á efri hæð í tvíbýlishúsi.

Eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði þurftu slökkviliðsmenn að hughreysta heimilishundinn. Gera má ráð fyrir að honum hafi ekki síður orðið hverft við að fá hóp einkennisklæddra manna í heimsókn í morgunsárið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku