Refsing milduð í skáksvindlmáli

Flokkar: Skák, Íþróttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Upp komst um svindl á Reykjavíkurskákmótinu sem haldið var í Hörpu í mars síðastliðnum en ungur keppandi frá Noregi var talinn hafa svindlað í keppninni með aðstoð föður síns. Í kjölfarið dæmdu skákstjórar tap á keppandann í lokaumferðinni og var hann sviptur verðlaunum fyrir bestan árangur ungmenna

Norskur skákdómstóll tók málið fyrir að móti loknu og var drengurinn upphaflega dæmdur í eins árs keppnisbann og faðirinn í þriggja ára bann. Dómnum var áfrýjað og fékkst niðurstaða í málinu í dag þar sem drengurinn var sýknaður en faðir hans fékk eins árs bann. Aðilar geta áfrýjað málinu til norskra dómstóla eða til Alþjóðlega skáksambandssins, FIDE.

Lesa má nánar um málið á skák.is og Nettavisen.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku