Tónaflóð – Stórtónleikar Rásar 2

Einn af hápunktum Menningarnætur í ár var án efa TÓNAFLÓÐ 2012 - Stórtónleikar Rásar 2, Vodafone og Exton, þar sem margir af dáðustu og vinsælustu listamönnum þjóðarinnar komu fram.
Þeir listamenn sem tróðu upp á Tónaflóði 2012 í beinni útsendingu á Rás 2 voru: Eivør Pálsdóttir frá Færeyjum, stuðboltarnir í Retro Stefsson, hið eina sanna KK Band og Jónas Sigurðsson ásamt Ritvélum framtíðarinnar.
Tónleikarnir í ár fóru fram í hjarta borgarinnar við Arnarhól, líkt og á síðasta ári. Nóg var plássið fyrir fólk á öllum aldri til að safnast saman eftir ánægjulegan dag í borginni. Reykjavíkurborg og aðstandendur tónleikanna lögðu áherslu á þá ósk sína að fjölskyldan nyti kvöldsins saman, enda dagskráin fjölbreytt og allir fundu vonandi eitthvað við sitt hæfi á tónleikunum, sem haldnir voru laugardagskvöldið 18. ágúst.
Hér má hlusta á tónleikana og klukkutíma upphitun sem send var út á Rás 2.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












