Spurði hvort mamma sín væri dáin

Anna Jóna Ármannsdóttir var orðin ófær um að sjá um son sinn vegna drykkju og þurfti á endanum að gefa hann frá sér. Hún hætti að drekka fyrir þrjátíu árum, endurheimti son sinn og varð fyrsta konan til að verkstýra í framleiðsludeild í álverinu í Straumsvík.
Við höfum í vikunni heyrt viðtöl Berglindar Häsler við fólk sem glímt hefur við áfengisvanda. Guðlaug Kjartansdóttir lýsti því fyrir okkur á áhrifaríkan hátt hvernig hún náði aftur tökum á lífi sínu eftir að hún fór í meðferð. Hún hefur nú verið edrú í tuttugu og tvö ár og aldrei verið sáttari. Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarspekúlant sagði frá sinni reynslu í gær. Konan hans og börnin tvo voru við það að gefast upp á honum. Hann segir tækifærin hafa streymt til sín eftir að hann hætti að drekka.
Saga Önnu Jónu er átakanleg.
,,Ég sá ekki mikið hina hliðina af lífinu mínu. Ég minnist þess samt sko að ég kom í fyrsta skipti ekki heim í þrjá daga. Foreldrar mínir vissu ekkert hvar ég var. Þau voru með barnið mitt ... Og pabbi spyr mig, hann spyr mig: var gaman hjá þér? Já, þetta var eitt skemmtilegasta fyllerí sem ég hafði farið á. Þá sagði hann: Sonur þinn sat úti í glugga og spurði í gær ,,er mamma mín dáin?“
Og svo fylgir mynd þessum pósti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













