Sögulegt handtak og evruvandræði

Sögulegt handtak Elísabetar drottningar og Martins McGuinnes í Belfast í gær.
Bogi Ágústsson fréttamaður kom til okkar í morgun og fjallaði um enn einn leiðtogafundinn þar sem á að leysa evrukreppuna og skuldavandræði landanna á evrusvæðinu. Hann sagði okkur líka frá heimsókn Englandsdrottningar til Írlands, og sögulegu handtaki hennar og fyrrum leiðtoga lýðveldissinna.
Þeir eru orðnir ófáir, leiðtogafundir ESB, þar sem á að leiða skuldavandræðin á evrusvæðinu til lykta, en leiðtogar sambandsins hafa hins vegar verið sakaðir um að velta vandamálunum á undan sér. Það sem mestu máli skiptir, segir Bogi, er afstaða Frakka og Þjóðverja, en leiðtogar þeirra, Merkel og Hollande hittust í París í gær.
Þjóðverja vilja áframhaldandi aðhald í fjármálum evruríkjanna, en Hollande og fleiri hafa lagt til að búinn verði til skuldabréfasjóður, svokölluð Eurobonds, sem gangist í ábyrgð fyrir skuldum bágstaddra ríkja í ESB.
Bogi fjallaði einnig um heimsókn Elísabetar Englandsdrottningar til Norður Írlands í gær, en þangað hefur hún ekki komið í um 25 ár. Þar átti sér stað merkilegur atburður, því einn af þeim sem tók í hönd drottningar var Martin nokkur McGuinnes, sem var yfirmaður írska lýðveldishersins (IRA) - samtakanna sem stóðu meðal annars fyrir morðinu á frænda drottningar, Louis Mountbatten, árið 1979. Martin, sem nú er ráðherra í stjórn landsins, sagði eftir athöfnina að hann væri enn ástríðufullur stuðningsmaður frelsis fyrir Norður-Íra, en að hann vildi nú sætta þá sem væru ósammála um samband Íra við bresk stjórnvöld.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














