Foreldrar vannýtt auðlind

Kristjana Stella Blöndal
Brotthvarf íslenskra ungmenna úr framhaldsskólum er mun hærra hér á landi en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Hér hefur heldur ekki dregið úr brotthvarfi á síðustu árum eins og í nágrannalöndunum.
Kristjana Stella Blöndal, lektor í félags- og mannvísindadeild við Háskóla Íslands, segir rannsóknir sýna að þeir sem hverfi
frá námi séu líklegri til þess að verða atvinnulausir, fá verri störf og muni frekar eiga við heilsufarsvanda að stríða á lífsleiðinni. Á meðan brotthvarf er um 40 prósent hér á landi er það á bilinu 20 til 25 prósent í OECD ríkjunum. Ísland sker sig líka úr að því leyti að þeir sem hætta í skóla hér á landi fá nærri allir vinnu og margir hætta vegna þess að þeim finnst þeir vera komnir í nokkuð góða vinnu miðað við aldur. Kristjana Stella segir mikilvægt að reyna að draga úr brotthvarfi og telur foreldra vannýtta auðlind hvað þessu viðkemur. Að virkja foreldra í forvarnarstarfi gegn áfengis- og tóbaksneyslu ungmenna. Kristjana Stella segir mikilvægt að foreldrar sýni viðurkennigu og stuðning, fylgi vel á eftir unglingunum sínum og geri kröfur til þeirra. Þá megi ekki sleppa af þeim hendinni þegar þau fara í framhaldsskóla. Hafa þurfi í fyrirrúmi svokallað leiðandi uppeldi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














