Feginn að hafa rofið vítahringinn

Í síðustu viku heyrðum við reynslusögur þriggja alkóhólista sem hafa hætt að drekka og fundið farsælla líf. Í dag héldum við umfjölluninni áfram og heyrðum sögu Valgeirs Skagfjörð.
Sautján ár eru síðan hann viðurkenndi fyrir sjálfum sér að hann væri alkóhólisti og fór í meðferð. Hann ætlaði samt aldrei að byrja að drekka enda uppkomið barn alkóhólista og hafði átt erfiða æsku þess vegna. Berglind Häsler talaði við hann á dögunum.
Valgeir leggur áherslu á það að alkóhólismi sé fjölskyldu sjúkdómur. Það hafi haft mikil áhrif á hann að hafa alist upp hjá alkólhólista og gert það að verkum að hann var í áhættuhópi. Hann á fjórar dætur og segist sem betur fer ekki vita til þess að þær séu alkóhólistar.
„... maður er maður er mjög þakklátur fyrir að hafa stöðvað framrás sjúkdómsins.“
Við höldum áfram að tala um alkóhólisma á morgun. Í dag hefst álfasala SÁÁ og á morgun fáum til okkar gesti og ræðum almennt um þennan sjúkóm sem hefur haft áhrif á fjölmargar fjölskyldur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














