Ekkert ráð við timburmönnum

Óttar Guðmundsson
Timburmenn eru tvennskonar, segir Óttar Guðmundsson læknir. Annars vegar líkamleg fráhvörf eftir vökvatap sem fylgir drykkju og ónógan svefn og hinsvegar angistin í kjölfar stjórnlausrar hegðunar sem fylgir vímunni.
Óttar ræddi timburmenn í Morgunútvarpinu í kjölfar verslunarmannahelgarinnar - mestu drykkjuhátíðar landans. Angistin eða mórallinn eftir fjöruga helgi geti verið óskapleg og óminnishegrinn taki sinn toll. Minnisleysi eftir stífa drykkju orsakist af því að heilinn hætti hreinlega að geta lagt á minnið það sem fyrir ber. Það sé oft óbrigðult merki um áfengissýki.
Hann segir engin ráð við timburmönnum. Þeir séu óumflýjanlegur fylgifiskur mikillar drykkju. Lítið sé að marka þá sem segjast aðeins hafa fengið sér eitt til tvö glös af áfengi og í raun sé tvennt sem flestir ljúgi til um; hversu mikið þeir drekka af áfengi og hversu miklu bíllinn þeirra eyði af eldsneyti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














