Danskir fleygja mat í ruslið
Fyrst birt: 12.07.2012 09:58, Síðast uppfært: 12.07.2012 10:09

Frændur okkar á Norðurlöndum hrósa sér iðulega af því að þeir fari vel með og bruðli ekki, til dæmis með mat. Þeir segjast engu henda og borða afgangana daginn eftir. Okkur Íslendingum finnst þeir stundum full aðhaldssamir, jafnvel nískir.
Borgþór Arngrímsson sagði frá því í Morgunútvarpinu að það hafi komið Dönum mjög á óvart þegar í ljós kom hveru miklu mat þeir henda í tunnuna. Í danskri skýrslu kemur fram að Danir hendi árlega tvö hundruð áttatíu og fjögur þúsund tonnum af mat, það eru um það bil sextíu og þrjú kíló á mann.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













