Bræðslan 2012

Flokkar: Tónlist, Rás 2


  • Prenta
  • Senda frétt

Tónlistarhátíðin Bræðslan fór fram í sjöunda sinn á Borgarfirði eystri laugardaginn 28. júlí. Var hátíðin að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Rás 2, en hægt er að hlusta á útsendinguna í heild sinni með því að smella á myndina hér fyrir ofan.

Bræðslan var fyrst haldin árið 2005 en hátíðin dregur nafn sitt af tónleikastaðnum, sem er gömul síldarbræðsla. Heimamenn, sem og margir aðrir, fullyrða að Borgarfjörður eystri sé einn fallegasti staður landsins og að ferðalagið þangað sé því vel þess virði.

Færri komust þó á Bræðslutónleikana í ár en vildu, þar sem uppselt var á hátíðina. Tónleikunum var útvarpað beint frá Borgarfirði eystri á Rás 2 en fjörið hófst upp úr kl. 19.30 og stóð fram eftir kvöldi.

Rás 2 hefur verið samstarfsaðili Bræðslunnar um árabil og safnað ótal upptökum frá hátiðinni í gegnum árin, auk þess að útvarpa tónleikunum beint.

Þeir listamenn sem komu fram á Bræðslunni 2012 voru: Mugison, Valgeir Guðjónsson, Fjallabræður, The Lovely Lion og Contalgen Funeral.

Bræðslan er styrkt af Rás 2, Menningarráði Austurlands auk þess sem Flugfélag Íslands og Flytjandi eru aðal máttarstólpar Bræðslunnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku