Besta heimildarmyndin á Skjaldborg
Fyrst birt: 29.05.2012 10:03, Síðast uppfært: 29.05.2012 10:46

Hreint hjarta var valin besta heimildarmyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, á Patreksfirði um helgina. Í myndinni fá áhorfendur að kynnast Kristni Ágústi Friðfinnssyni sem hefur verið prestur á Selfossi og nágrenni í 20 ár.
Grímur Hákonarson, leikstjóri myndarinnar, settist með Morgunútvarpinu í morgun og sagði okkur frá myndinni, upptökuferlinu og hátíðinni.
Kristinn Ágúst er litríkur karakter sem er ekkert óviðkomandi í starfi og hefur varla undan við að leysa úr vandamálum annarra. Hann bregður sér jafnt í hlutverk sáluhjálpara sem og særingarmanns. En hann þarf líka að glíma við sína eigin drauga.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














