Vafasamir pólitíkusar

Sómakær framámaður í Vinstriflokknum í Noregi, bæjarfulltrúi og trúnaðarmaður, er skyldilega sakaður um nauðgun eftir flokksfund

Hann hellti unglingsstúlku í ungliðahreyfingu flokksins fulla og kom fram vilja sínum. Þetta gerðist hér í Stafangri um liðna helgi. Á sama tíma er réttur settur í dómhúsinu þar í bæ yfir öðrum flokksbroddi úr öðrum flokki en sakarefnið kynferðislegt. Hann lokkaði ungliða í flokknum heim til sín að loknum flokksfundum, gaf þeim vín eins og þeir vildu gegn kynmökum og myndaði þá nakta með leynilegri myndavél. Gísli Kristjánsson segir frá í Spegli dagsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku