Tvískinnungur Obama



  • Prenta
  • Senda frétt

Upplýsingar um aðgerðir Bandaríkjastjórnar hafa ítrekað lekið í fjölmiðla

Hvort það hefur einhverjar afleiðingar, virðist ráðast af því hvort upplýsingarnar sýni stjórnvöld í jákvæðu ljósi eða ekki. Nákvæmar lýsingar hafa birst í fjölmiðlum á árásinninni á bækistöðvar Osama bin Laden. Bandarískir fjölmiðlar hafa líka fjallað ítarlega um hvernig Obama forseti ákveður, hvort ráðast eigi á einstaka hryðjuverkamenn úr ómönnuðum loftförum. Embættismönnum og þingmönnum er óheimilt að leka upplýsingum um mál eins og þessi. Enda eru þau talin varða þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Stjórn Obama forseta hefur útnefnt tvo saksóknara til að rannsaka lekana. Engar ákærur hafa hafa þó verið gefnar út vegna. Ef til vill er ekki að furða. Eins og bent hefur verið á í bandarískum fjölmiðlum, styrkja þessir lekar ímynd Baracks Obama, Bandaríkjaforseta. Honum var fagnað eftir drápið á bin Laden og myndir birtar af þegar er hann og nánustu samstarfsmenn fylgjast með árásinni á bækistöðvar hans, í beinni útsendingu. Bein þátttaka hans í drápi á meintum hryðjuverkamönnum, með því að varpa á þá sprengjum úr mannlausum loftförum, þykir líka vera honum til framdráttar. Hann birtist sem sterkur leiðtogi - maður sem er ekki hræddur við að taka ákvarðanir, en vill um leið bera beina persónulega ábyrgð. Sterkari ímynd, sérstaklega ímynd hins harða manns í utanríkismálum, mun vafalaust nýtast Obama í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember. Charles Krauthammer, fréttamaður sem vinnur fyrir Washington Post, Fox News og fleiri fjölmiðla, hefur gagnrýnt kollega sína fyrir að skrifa fréttir sem séu í raun ekkert annað en jafngildi fréttatilkynninga frá Hvíta húsinu, embætti Bandaríkjaforseta.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku