Tveir strengjakvartettar

Tveir strengjakvartettar sem voru hljóðritaðir á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðarkirkju, 20. nóvember síðast liðinn verða á dagskrá sunnudaginn,22. janúar. Þetta eru strengjakvartett nr. 5 í g-moll H.268 eftir Bohuslav Martinu og strengjakvartett nr. 3 í es-moll op.30 Piotr Tchaicovsky.

Flytjendur á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins 20. nóvember síðast liðinn eru Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik fiðluleikarar, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóluleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari. Það var Georg Magnússon tæknimaður ríkisútvarpsins sem sá um upptökurnar.

Bohuslav Martinú var uppi á árunum 1890-1959. Hann fæddist í tékkneska hluta Bæjaralands, og stundaði nám í Prag sem ungur maður, en fluttist síðar til Parísar og bjó þar um skeið, en einnig á Ítalíu og Sviss og um tíma í Bandaríkjunum. Í París varð hann fyrir margvíslegum áhrifum nýrra tónlistarstefna, eins og t.d. frá jassi og tónlist Stravinskýs, sem var á þeim tíma á sínu nýklassíska skeiði. Martinu samdi sjö strengjakvartetta sem sýna vel þróun hans sem tónlistarmanns, sá fyrsti er frá árinu 1918 og sá síðasti frá 1947. Sá sem hér verður fluttur er sá fimmti eins og áður sagði, en þegar hann var saminn, árið 1938, grúfði skuggi persónulegra, jafnt sem pólitískra hremminga yfir Martinu – Þjóðverjar voru teknir að seilast til valda í Tékklandi, og réðust inn í landið skömmu síðar, en eftir þá árás átti Martinu aldrei eftir að koma til föður lands síns.

Pjotr Tchaikovsky var uppi á árunum frá 1840-1893.Hann þarf varla að kynna fyrir hlustendum en hann verður að teljast með vinsælustu tónskáldum Rússa. Verk hans eru mjög rómantísk og stór í sniðum, en þó full þokka og laglínurnar eru grípandi. Hann samdi verk af margvíslegum toga þótt ballettarnir og konsertarnir séu kannski það sem flestir þekkja. Kammerverk eftir hann eru aðeins sex, og þar af eru þrír strengjakvartettar og við heyrum þann síðasta nú. Hann var frumfluttur í Moskvu árið 1786, í tilefni heimsóknar Konstantíns Nikolayevich, forseta tónlistarfélags Rússa, en ekki síður bróðir Rússakeysara, til borgarinnar. Verkinu var vel tekið við þennan frumflutning og hægi kaflinn, sem ber yfirskriftina andante funebre e doloroso, kom tárum út hjá mörgum hlustendum – en orðin funebre og doloroso þýða bæði sorglegt, eða drungalegt. Kvartettinn er tileinkaður tékkneska fiðluleikaranum og tónskáldinu Ferdinand Laub, en hann hafði meðal annarra frumflutt hina tvo strengjakvartettana. 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku