Tónlist fyrir matarborð í Montreal!

Les Masques á tónleikum.
Leikið verður tónleikahljóðrit með kanadíska hópnum Ensemble Masques sem fram fóru í Montreal í Kanada en hópurinn er með þeim áhugaverðari sem komið hafa fram á sjónarsviðið á síðustu árum. Verkefnaval tók útgangspunkt í tónsköpun þýskumælandi landa á barokktímanum og spannaði því allt frá kantötum til sónata sem henta bæði fyrir altari og matarborð auk þess sem nefið var stungið inn í skylmingaskóla.
Tónlist í þættinum, hljóðrituð af Kanadíska útvarpinu. Flutt af Les Masques en hópinn skipuðu: Sophie Gent og Tuomo Suni fiðluleikarar, Anne Thivierge flauta, Kathleen Kaijoka víóla, Mélisande Corriveau gamba, Benoît Vanden Bemden violone og Olivier Fortin á sembal og orgel.
Sonata VII fyrir fjóra strengjaleikara og fylgirödd í d-moll eftir Johann Rosenmüller (um1619-1684)
Sicut Moses exaltavit serpentem fyrir sópran, strengi og fylgirödd BuxWV 97 eftir Dietrich Buxtehude (1637-1707)
Sónata IX fyrir 5 strengjaraddir og fylgirödd í B-dúr úr Sonatae tam aris quam aulis servientes eftir Heinrich Ignaz Franz von Biber (1644-1704).
Balletto fyrir fjórar strengjaraddir og fylgirödd „Die Fechtschule“ eftir Johann Heinrich Schmelzer (um1620-1680).
Schlummert ein, ihr matten Augen úr kantötunni Ich habe genug fyrri sópran, flautu, strengi og fylgirödd BWV 82a eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750).
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














