Tinna Þorsteinsdóttir á Myrkum

Tinna Þorsteinsdóttir hélt einleikstónleika á Myrkum músíkdögum nú fyrir skemmstu, og frumflutti þar sex verk eftir jafnmörg tónskáld. Þau verða öll flutt í Ópus - þætti um samtímatónlist, 13. febrúar, og rætt verður við Tinnu um verkin.
Tónleikarnir fóru fram í Norðurljósasal Hörpu, 28. janúar síðast liðinn.Tinnu til aðstoðar í nokkrum verkanna var slagverksleikarinn Frank Aarnik. Verkin sem Tinna flutti á tónleikunum, verða öll flutt í Ópus og auk þess segir Tinna frá verkunum.
Verkin sex eru: The Negotiation of Context - C eftir Davíð Brynjar Franzson
Jökla og Embla - tvö örverk eftir Jónas Tómasson
Hyrnan II eftir Hafdísi Bjarnadóttur, verk sem hún vann uppúr prjónauppskrift sem ber nafnið Þórdísarhyrna. Áður hefur Hafdís samið verk fyrir sinfóníuhljómsveit sem ber einmitt það nafn og Tinna ræðir um tengsl prjónauppskriftanna við tónlistina í þættinum.
scape eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem ber undirtitilinn "hlustið á myrkrið",
Mosaik VI eftir Kjartan Ólafsson og að síðustu, 283° eftir Áka Ásgeirsson.
Ópus, kl. 21:10 13. febrúar 2012
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






