Þar varð stæsta eldgos Íslandssögunnar

Öræfajökull

Ætlunin er að fjalla um nokkur hæstu fjöll landsins á næstu mánuðum og byrja á Öræfajökli. Fjallið hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma og 1363 varð líklega stærsta eldgos Íslandssögunnar, jafnvel það stærsta í Evrópu á síðastliðnum 2000 árum.

Öræfajökulsgosið 1362 eyddi allri byggð sem kölluð var Litlahérað eða Hérað milli sanda. Eftir gosið hlaut byggðin nafnið Öræfi og jökullinn dró þá nafn sitt af henni. Gosið er þriðja stærsta gjóskugos á landinu síðan ísa leysti fyrir um 15.000 árum og það stærsta eftir landnám.

Grágæsirnar á Tjörninni í Reykjavík eru afkomendur nokkurra fugla sem maður nokkur ól upp og sleppti þar rétt fyrir 1960. Grágæsavarpstofninn sem nú verpir við Tjörnina er kominn út af þessum fuglum. Leysingjarnir höfðu síðan vetursetu og urpu í Vatnsmýrinni. Síðan hafa þeir líklega dregið að sér aðrar gæsir.

Oddafélagið var stofnað til að halda sögu Odda á lofti. Í félaginu er áhugi fyrir að gera staðinn að miðstöð fyrir ráðstefnuhald og leggja áherslu á umhverfisfræðslu og umhverfisrannsóknir sem og tengsl sagnfræðinnar við náttúrufræðina. Við heyrum spennandi hugmyndir um það.

Vestfirðir eru stundum sagðir ein af leyndum perlum landsins. Nú er mikill hugur í fólki fyrir vestan og fjölbreytt fyrirtæki sem leggja áherslu á afþreyingu og upplifun hafa sprottið upp. Lögð er áhersla á litla hópa og náttúru og umhverfisvernd svo perlan missi ekki glansinn.

 SVAR VIÐ SPURNINGU DAGSINS

Það var spurt um þinghald á Þingvöllum. Hvaða ár er talið að þinghald þar hafi hafist? Hversu lengi fór Alþingi með æðsta löggjafar- og dómsvald á Íslandi og hvenær og hvers vegna urðu breytingar á þinginu þannig að það dró úr vægi þess? Nefnið tvo nafngreinda menn sem unnu að undirbúningi fyrsta þingsins og hvert var hlutverk þeirra hvors um sig?

Það er komið að svari við spurningu dagsins og það var spurt um þinghald á Þingvöllum. Alþingi fór með æðsta löggjafar- og dómsvald á Íslandi frá stofnun þess árið 930 til ársins 1262 að Ísland fór undir Noregskonung. Úlfljótur fór til Gulaþings í Noregi til að sækja lög og fóstbróðir hans Grímur Geitskör fór um landið til að afla hugmyndinni fylgis og finna hentugan stað.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku