Það heyrast hamarshögg úr plasthjúpnum

Á Árbæjarsafni heyrist tónlist og hamarshögg frá húsi sem hefur verið pakkað inn í plast. Þetta er Ívarssel sem verið er að endurgera enda hefur það bæði byggingarsögu-og menningarsögulegt gildi.

 

Ívarssel, páskar í landinu helga og 12 fjöll er efni þáttarins

Húsið Ívarssel sem stóð við Vesturgötu 66b var flutt upp í Árbæ árið 2005. Nú vinna smiðir hörðum höndum að því að koma því í upprunalega mynd. Ívarssel var einn af Selsbæjunum, tómthúsbýlum sem voru byggð í landi Sels á 19. öld. Húsið hefur mikið varðveislugildi sem elsti vitnisburður sem nú er til um híbýli reykvískra tómthúsmanna.

Um hverja páska flykkjast kristnir ferðamenn hvaðanæva að til landsins helga og undanfarin ár hafa allmargir Íslendingar verið í þeim hópi. Það er án efa mjög sérstakt að horfa á gönguna inn í gömlu Jerúsalem á pálmasunnudag ofan af Ólívufjallinu og hlýða á páskamessu þar í lútherskri kirkju.

Undanfarin ár hefur Ferðafélag Íslands boðið upp á vikulegar eða mánaðarlegar gönguferðir á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Það er áskorun fyrir marga að rífa sig upp um hverja helgi eða eina helgi í mánuði hvernig sem viðrar og leggja á brattann og ekki síst þá sem eru óvanir fjallgöngum. Við höldum á Helgafell með 130 manns í verkefninu 12 fjöll.

Þá er það spurning dagsins. Við spyrjum um Mývatnssveit. Nefnið frægan gíg eða eldfjall í Mývatnssveit sem og sérkennilegar hraunmyndanir sem gera garðinn frægan. Það hefur gosið tvisvar í sveitinni á sögulegum tíma, hvar gaus og hvenær?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku