Sór biskupsdóttir rangan eið?

Mynd af Ragnheiði Brynjólfsdóttur eins og myndlitarmaður gerði sér hana í hugalund.

Ekkert svar hefur fengist á einu umdeildasta máli Íslands sem varðar þann atburð þegar biskupsdóttir sór eið um skírlífi sitt.

Það er engin nýlunda að umdeild mál komi upp er varða kirkjunnar þjóna og skyldmenni þeirra. Eitt frægasta mál þeirrar tegundar á fyrri öldum er barnfeðrismál Ragnheiðar Brynjólfsdóttur, dóttur Brynjólfs bikups í Skálholti.

Margar bækur hafa verið skrifaðar um þau mál en hæst ber án vafa leikrit Guðmundar Kamban,Skálholt, eða Í Skálholti eins og það hét upphaflega. Leikrit Kambans hefur ekki verið flutt í atvinnuleikhúsi um nokkurt skeið, en það hefur frá því það var skrifað, ratað á helstu leiksvið landsins og telst án vafa eitt af helstu verkum íslenskra leikbókmennta fyrri tíðar.

Skálholt hefur bæði verið leikið í sjónvarpi sem og útvarpi RÚV.

Nú á laugardagskvöldið, 10. desember kl. 20, gefst hlutendum kostur á að hlýða á þetta stórvirki íslenskra leikbókmennta. Upptakan er frá árinu 1955 og þar má heyra Herdísi Þorvaldsdóttur, þá kornunga leikkonu, fara með hlutverk Ragnheiðar biskupsdóttur, Þorsteinn Ö. Stephensen er í hlutverki föður hennar, Brynjólfs biskups, og Róbert Arnfinnson leikur Daða ástmann hennar.

Efni leikritsins er í stuttu máli á þessa leið: Í Skálholti gengur sá orðrómur að Ragnheiður dóttir Brynjólfs biskups eigi í ástarsambandi við kennara sinn. Hún er neydd til að sverja sakleysi sitt í kirkju, en níu mánuðum síðar elur hún barn. Biskupinn getur ekki fyrirgefið slíka synd – ekki einu sinni uppáhaldsdóttur sinni.

Auk fyrrnefndra leikara fara með hlutverk margir af ástsælustu leikurum þjóðarinnar á síðustu öld: Arndís Björnsdóttir, Haraldur Björnsson, Brynjólfur Jóhannesson, Gestur Pálsson, Ingibjörg Steinsdóttir, Jón Aðils, Þóra Borg, Edda Kvaran, Nína Sveinsdóttir og Bryndís Pétursdóttir.

Leikstjóri þessarar upptöku er enginn annar en Lárus Pálsson. Páll Ísólfsson sá um orgelleik og söngstjórn.

Söngvarar: Indriði Bogason, Sigurður Waage, Jón Pálsson og Gunnar Guðmundsson.

Á undan Skálholti, eða kl. 19:00 verður á dagskrá þáttur úr þáttaröðinni Þau stóðu í sviðsljósinu. Þar fjallar Stefán Baldursson um hina merku leikkonu Regínu Þórðardóttur. Þátturinn er frá árinu 1976.

Ragnheiður Brynjólfsdóttir fæddist árið1642, hún var dóttir Brynjólfs biskups og Margrétar konu hans. Þann 11. maí árið 1661, þegar Ragnheiður var 19 ára sór hún eið, að hún væri hrein mey.

Eiður Ragnheiðar:                            

“Til þess legg ég,Ragnheiður Brynjólfsdóttir, hönd á helga bók og það sver ég við guð almáttugan,að ég er enn nú á þessari stundu svo óspillt mey af öllum karlmanns völdum ogholdlegum saurlífsverkum sem þá, er ég fæddist fyrst í þennan heim af minnarmóður lífi, svo sannarlega hjálpi mér guð með sinni miskun,sem ég þetta sver,en refsi mér, ef ég lýg"

Níu mánuðum eftir að Ragnheiður sór eið að hún væri hrein mey , fæddi hún sveinbarn í Bræðratungu laugardaginn 15. febrúar 1662.Faðir Ragnheiðar brást illa við þessu tók barnið af henni, rak hana nánast af heimilinu og dæmdi Daða Halldórsson barnsföður Ragnheiðar og fjölskyldu hans, fjölskylda Daða þurfti að borga stórar fjársektir. Ragnheiður andaðist 23.mars 1663, aðeins 21 árs, vegna mikila veikinda

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku