Skáldið Sjón leikur engil

Engillinn Sjón í Augu þín sáu mig.

Líkt og engillinn í Bíblíunni vitjar Maríu móður Jesús, þá vitjar engill stúlkunnar Marie Sophie í leikritinu Augu þín sáu mig, sem byggt er á samnefndri sögu skáldsins, Sjón. En skáldið fer einmitt með hlutverk engilsins.

Smábær í neðra Saxlandi að næturlagi – er nokkur staður friðsælli og ólíklegri til tíðinda? En hvað ef þetta er á stríðsárunum og dularfullur maður er nýkominn á gistiheimili staðarins, þar sem meðal annars þjónustustúlkan Marie-Sophie gengur til verka? Og hvernig getur stúlkan fagra orðið honum að liði? - Þanni hljóðar í stuttu máli efni verksins.

Leikritið er útvarpsleikgerð eftir leikstjórann Bjarna Jónsson og hljómsveitina múm, sem jafnfram semur og flytur tónlistina. Útvarpsleikritið Augu þín sáu mig verður á dagskrá á sunnudaginn, 11. desember, kl. 14 á Rás 1.

AUGU ÞÍN SÁU MIG, kom út árið 1994 og hlaut Menningarverðlaun DV fyrir bókmenntir 1995. Hún hefur verið þýdd og gefin út í fjölmörgum löndum, eins og Danmörku, Finnlandi, Litháen, Noregi, Spáni og Svíþjóð.


„Augu þín sáu mig er ástarsaga. Og hún er allt í senn: fyndin, spennandi, dramatísk, uppátektarsöm, dularfull og söguleg...  Allar persónur eru dregnar skýrum dráttum og sögumaðurinn hefur gaman af að draga fram sérkenni þeirra svo þær verða allt að því farsakenndar. Engillinn Freude (þýðir gleði á þýsku og vísar einnig til Freuds) leikur einnig stórt hlutverk, en hann skráir niður draumfarir manna í bænum og hefur jafnvel áhrif þar á...“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðið 15.12.1994

,,Augu þín sáu mig  er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.Úr 139. Davíðssálmi.

Leikendur: Víðir Guðmundsson, Birgitta Birgisdóttir, Sigurður Skúlason, Kristján Franklín Magnús, Ólafur Darri Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Valur Freyr Einarsson og skáldið Sjón.

Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson og hljómsveitin múm.

Útvarpsleikritið Augu þín sáu mig var frumflutt á jólum 2008 og hlaut tilnefningu til Prix-Europa, evrópskra útvarpsleikritaverðlauna sem útvarpsverk ársins í Evrópu 2009. Það vann 6. sæti af 40 verkum frá útvarpsstöðvum víða úr Evrópu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku