Sherlock Holmes í gegnum tíðina

Flokkar: Rás 1, Skorningar


  • Prenta
  • Senda frétt

Í ár fagnar leynilögreglumaðurinn Sherlock Holmes 125 ára afmæli sínu.

Í Skorningum 12. ágúst kl. 18:17 munum við fjalla um Sherlock Holmes og áframhaldandi ævintýri hans á tuttugustu og fyrstu öldinni.

Fjöldi rithöfunda hefur spreytt sig síðustu öldina að skrifa sögur þar sem Sherlock Holmes er í aðalhlutverki. Þessar sögur skipta ekki aðeins hundruðum heldur þúsundum. Árið 1995 kom út bókaskrá yfir verk um Sherlock Holmes. Þar eru um 25 þúsund færslur og þeim hefur síst fækkað á þeim tveim áratugum sem síðan hafa liðið. Sherlock Holmes hefur tekist á við blóðsugugreifann Drakúla, verið sálgreindur af Sigmund Freud, barist við nasista, glímt við varúlfa á tunglinu, ferðast til afkima jarðarinnar þar sem hann gælir við risaeðlur og upplýst glæpi með aðstoð Leðurblökumannsins.

Í þættinum fjöllum við um þrjár af þessum bókum: The Silk House eftir Anthony Horowitz sem kom út 2011, The Final Solution eftir Michael Chabon frá árinu 2004 og að lokum munum við fjalla um bókaflokk eftir spennusögurithöfundinn Laurie R. King, en hún hefur skrifað 11 bækur um Sherlock Holmes og Mary Russell. Fyrsta bókin í þeim bókaflokki, The Beekeeper's Apprentice, kom út árið 1994.

Umsjónarmaður Skorninga er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og lesari með henni er Finnbogi Þorkell Jónsson.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku