Selur sál sína djöflinum

Lárus Pálsson leikari

Loftur, ungur skólapiltur á Hólum og sonur ráðsmannsins á staðnum, fæst við kukl og galdra. Hann barnar vinnukonu á staðnum. Til að bjarga eigin orðstír drepur hann vinnukonuna með galdri.

Hann sækist í æ meiri galdrakunnáttu  og í þeim tilgangi særir hann Gottskálk biskup grimma til þess að ná af honum galdrabókinni Rauðskinnu, sem mun gera hann enn öflugri. Loftur verður hins vegar vitfyrtur og deyr.

Þannig hljóðar í stuttu máli efni útvarpsleikritsins GALDRA - LOFTUR eftir Jóhann Sigurjónsson sem flutt verður í Útvarpsleikhúsinu sunnudaginn 8. janúar kl. 14 á Rás 1.

Upptakan er frá árinu 1947 og er ein elsta upptaka útvarpsleikrits. Með titilhlutverkið fer Lárus Pálsson og í öðrum stórum hlutverkum eru Soffía Guðlaugsdóttir (Steinunn), Bryndís Pétursdóttir (Dísa) og Róbert Arnfinnsson (Ólafur). Leikstjóri er Haraldur Björnsson.

Leikritið var frumflutt á jólum í Reykjavík árið 1914 og er annað þekktasta verk Jóhanns ásamt Fjalla-Eyvindi og hefur líkt og það verið flutt víða, bæði hér heima sem og erlendis.

Jóhann sótti efniviðinn í þjóðsöguna um skólapiltinn Leif Þorsteinsson sem nam á Hólum. Hann var fæddur árið 1702.

Samkvæmt þjóðsögunum stundaði hann galdrakukl í skóla og í leikriti Jóhanns verður það banabiti hans á meðan hann er enn á Hólum en Loftur lauk raunar stúdentsprófi árið 1722 og er ekkert vitað um hann með vissu eftir það.

Í þjóðsögunum af Galdra-Lofti segir að hann hafi sturlast eftir að honum mistókst að ná galdrabókinni Rauðskinnu og hafi þá verið komið fyrir hjá öldruðum presti á Staðarstað en hann slapp úr gæslu hans, reri einn út á litlum bát og var sagt að grá hönd og loðin hefði sést koma upp og draga bátinn í djúpið.

Hvað sem sögunum líður er víst að Loftur hefur dáið ungur en óvíst er hvenær það var eða hvernig dauða hans bar að höndum.

Hér má lesa nánar um Jóhann Sigurjónsson.

Hér má fræðast meira um söguna af skólapiltinum Lofti, sem kallaður var Galdra-Loftur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku