Seðlabankastjórar beggja vegna borðsins



  • Prenta
  • Senda frétt

18 stjórnarmenn í Seðlabanka Bandaríkjanna veittu eigin fyrirtækjum gríðarhá lán á nær engum vöxtum.

Nú hefur komið í ljós að margir þeirra sem stýrðu viðbrögðum stjórnvalda í Bandaríkjunum við fjármálakreppunni haustið 2008, voru í góðri aðstöðu til að skara eld að eigin köku. Bandaríkjastjórn reyndi, haustið 2008, að stöðva kreppuna og koma í veg fyrir að bankakerfið færi á hliðina, með því að dæla gríðarmiklu fé út í hagkerfið. Einnig voru veitt lán til banka og fjármálastofnana á litlum sem engum vöxtum. Í nýrri skýrslu sem Bernie Sanders, öldungardeildarþingmaður Demókrata, lét vinna, er leitt að því líkum, að ákveðnir bankar og fjármálastofanir hafi hagnast mjög á því að vera með sína menn á réttum stöðum. Í skýrslu Sanders segir að bankar og fjármálafyrirtæki, þar sem stjórnarmenn í Seðlabankanum störfuðu, hafi fengið alls fjögur þúsund milljarða dollara í lán á afar lágum vöxtum. Þetta eru kr. 500.000.000.000.000.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku