Ólga á Maldív-eyjum

Mikil ólga er nú á Maldív-eyjum og hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur forseta landsins

Mohamed Nasheed, forseti Maldív-eyja, sagði af sér í fyrradag eða var neyddur til að segja af sér. Efalítið vita Íslendingar ekki mikið um þessar fjarlægu eyjar, en Mohammed Nasheed, fyrrverandi forseti, kom þó til Íslands fyrir tveimur árum og þá tók Bogi Ágústsson hann tali í þætti sínum Viðtalinu í sjónvarpinu. Bogi segir frá ólgunni, Nasheed og Maldív eyjum í Spegli dagsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku