Náttúruböð í Hveragerði
Fyrst birt: 17.08.2012 18:00, Síðast uppfært: 17.08.2012 18:00

Það eru margir staðir í og við Hveragerði þar sem hægt er að kasta klæðum og stynga sér til sunds. Í Reykjadal er heitur lækur, í Varmá baða krakkarnir sig í fossinum innanum fiskinn, og svo auðvitað hin glæsilega sundlaug. Flakkað verður um Hveragerði öðru sinni á morgun kl. 1300.
Hveragerði er enn og aftur viðkomustaður Flakksins á Rás 1. Litið verður í heimsókn í Fagrahvammi sem er elsta garðyrkjustöðin í Hveragerði, einnig gengið um götur bæjarins og rýnt í söguna. Það er einnig hægt að láta sér líða vel í Frosti og Funa sem er all sérstæður gistisaður innst í bænum rétt við Varmá, og fara í jarðskjálftahermi í Upplýsingamiðstöðinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














