Myrkurhús og strætóskýli

Strætóskýli, mynd á sýningu Sigurðar Gunnarssonar.
Upphaf ljósmyndunar má rekja margar aldir aftur í tímann. Löngu áður en filman var fundin upp smíðuðu menn ýmis tæki sem líktust myndavélum. Enska orðið fyrir myndavél - camera - á rætur sínar að rekja til þessa tíma, er fengið úr latínu og þýðir einfaldlega herbergi.
Fyrsta myndavélin var að öllum líkindum myrkvað herbergi, camera obscura sem einnig hefur verið nefnt myrkurhús á Íslensku. Ljósmyndarinn Sigurður Gunnarsson hefur nokkra reynslu af því að búa til frumstæðar myndavélar og myrkurhús sem kennslutæki í ljósmyndun. Víðsjá tók hann tali og fræddist ögn um hið myrkvaða herbergi.
Sigurður opnaði einnig ljósmyndasýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag, þar sýnir hann tíu myndir af strætóskýlum sem hann myndaði í Reykjavík. Sigurður segir að það séu til mörg mismunandi afbrigði af strætóskýlum og þegar maður byrjar að skoða þau og safna myndum af þeim verði ekki aftur snúið. Hann hefur tekið stefnuna út á land og mun væntanlega þefa uppi óvenjuleg strætóskýli hvar sem hann finnur þau.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






