Myrkur á Skólavörðuholti

Myrkur er samkvæmt vísindavef Háskóla Íslands einungis skortur á ljósi. Það segir sig eiginlega sjálft. Það þarf tæplega hámenntaðan eðlisfræðing til að útlista það fyrir manni. Myrkur er skortur á ljósi.
En ég tel að myrkrið hafi ekki nógu góðan fjölmiðlafulltrúa, ljósið á að vera svo gott og yndislegt, myrkrið hins vegar sagt tilheyra hinu illa. Myrkraverk þykja ekki æskileg og Myrkrahöfðinginn þykir fæstum vera merkilegur pappír. Margir óttast myrkrið og vissulega má staðhæfa að án ljóss sé ekkert líf - en það þarf að vera jafnvægi í öllu og því þurfum við myrkrið. Skortur á myrkri er til dæmis flokkað sem mjög öflugt tæki til pyntinga. Því má segja að myrkur sé í raun hluti af mannréttindum okkar.
Þannig að það má ljóst vera að myrkrið er eitthvað meira og merkilegra en bara skortur á ljósi.
Í gærkvöldi var slökkt á götulýsingunni á Skólavörðuholti fyrir setningu Vetrarhátíðar í Reykjavík og þónokkrir borgarbúar hættu sér út í myrkrið til að fylgjast með.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






