Mið- Atlandshafshryggurinn, biskupsfrú og Sigríðarstígur

Gullgoss Sigríðarstígur
í þættunum fræðumst við um framgang jökla og muninn á jafngangsjöklum og framgangsjöklum. Við forvitnumst líka um Reykjanesið sem er stórmerkilegt svæði jarðfræðilega , heyrum af biskupsfjölskyldu á 19.öld sem og ný opnuðum fræðslustíg við Gullfoss.
þá eru til skriðjöklar sem hafa gengið fram á sama tímabili. Þetta eru svokallaðir framgangsjöklar en þeir hlaupa sumir fram með með áratuga millibili. Til að meta hve mikið jöklarnir hafa hopað þarf að taka tillit til þess mikla munar sem er á eðli mismunandi skriðjökla. Við heyrum af því og höldum svo út á Reykjanes.
Reykjanesskaginn er fyrir mögum leiðin frá flugvellinum til Reykjavíkur eða öfugt. En þetta er stórmerkilegt svæði. Á því má finna margvíslegar menjar um eldvirkni undanfarinna 200.000 ára. Reykjanesskaginn er einn af tveimur stöðum í heiminum þar sem hægt er að sjá djúpsjávarhrygg á landi en Mið-Atlanadshafshryggurinn gengur á land við Reykjanestána. Við heyrum í landfræðinema sem uppgötvaði þessa perlu.
Næst liggur leiðin í miðbæ Reykjavíkur. Við fetum í fótspor kvenna sem þar hafa gengið um götur og torg og staðnæmumst við Austurstræti 16. Þar var hús biskupsins Péturs Péturssonar á seinni hluta 19 alda. Kona hans Sigríður Bogadóttir skrifaði leikrit sem lýsa tíðarandanum og Þóra dóttir þeirra setti svip á bæinn og tók á móti erlendum gestum. Við heyrum af þeim mæðgum. Að lokum liggur leiðin upp að Gullfossi.
Nýverið var opnaður við Gullfoss fræðslustígur sem kenndur er við Sigríði í Brattholti. Á stígnum eru fjölmörg upplýsingaskilti um fossinn og Sigríði og baráttu hennar fyrir verndun þessarar náttúruperlu. Með opnun Sigríðarstígs verða upplýsingar um hana og svæðið aðgengilegar öllum, allt árið um kring á fjórum tungumálum.
Við byrjum að vanda á spurningu dagsins og höldum á Jarðhitasvæðið á Reykjanestá sem hefur stækkað mikið á undaförnum árum. þar eru stórir leir og varnshverir og gufumökkur yfir öllu. Hvað heytir stærsti leirhverinn sem nú er hulinn gufu og af hverju er nafnið dregið? Ein af þjóðsögum okkar segir frá þessum hver og nafngiftinni. Hverjar eru helstu sögupersónur í þeirri sögu?
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






