Menningarminjar í dimmum kjallara

Flokkar: Menning, Rás 1


  • Prenta
  • Senda frétt

Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur segir sérstakt að jafn merkar minjar og fundust við uppgröft í Aðalstræti í Reykjavík, um upphaf byggðar í landinu, skuli geymdar í dimmum kjallara og hótel byggt yfir. Þetta kom fram í viðtali um líkindi fornsagna okkar og söngva frumbyggja Ástralíu.

Í þættinum Fyrr og nú var í dag fjallað um það sem kallað hefur verið sönglínur  í menningu frumbyggja Ástralíu.  Upplýsingar um staði og leiðir voru geymdar í söngvum, en þeir geyma líka sagnir af forfeðrum og tengslum mannanna við umhverfi sitt.  Gísli leiðir að því líkum að þetta megi heimfæra upp á fornsögur okkar.  Með bókmenntalegu sniði geymi þær upplýsingar um staði og aðstæður um leið og þær greina frá atburðum.

Fyrr og nú þriðjudaginn 26. júní 2012 kl. 13

Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir
hannags@ruv.is

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku