Leikritið Íslandsklukkan á Rás 1



  • Prenta
  • Senda frétt

Nýhreinsuð upptaka af vígslusýningu Þjóðleikhússins árið 1950 á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness, í leikgerð og leikstjórn Lárusar Pálssonar verður á dagskrá á Leikritakvöldi útvarpsins næstu tvö laugardagskvöld, 21. og 28. apríl.

Leikritið er flutt í tveim hlutum. Fyrri hluti verður fluttur kl. 20 laugardagskvöldið 21. apríl og sá seinni viku síðar á sama tíma.

Upptakan var gerð árið 1957 en hefur nú verðið hljóðhreinsuð í bestu gæði sem nútíma tækni býður upp á af hljóðmeistara Ríkisútvarpsins, Hreini Valdimarssyni.

Formálsorð flytur Halldór Laxness og eru þau frá árinu 1950 eins og sýningin.

Persónur og leikendur:

Jón Hreggviðsson: Brynjólfur Jóhannesson
Assessor Arnas Arnæus: Þorsteinn Ö. Stephensen
Snæfríður Eydalín: Herdís Þorvaldsdóttir
Séra Sigurður Sveinsson dómkirkjuprestur: Jón Aðils
Magnús Sigurðsson júngkærinn í Bræðratungu: Gestur Pálsson
Eydalín lögmaður: Valur Gíslason
Grindvicensis/Gamall maður: Lárus Pálsson
Jón Marteinsson: Haraldur Björnsson
Kona Arnæusar: Regína Þórðardóttir
Böðull/Blindur glæpamaður: Baldvin Halldórsson
Áhorfandi: Steindór Hjörleifsson
Sýslumaður: Árni Tryggvason
Kona Jóns Hreggviðssonar: Anna Guðmundsdóttir
Séra Þorsteinn/Sýknaður maður: Klemenz Jónsson
Móðir Jóns Hreggviðssonar: Emilía Jónasdóttir
Guttormur Guttormsson/Von Úffelen: Ævar R. Kvaran
Jón Þefílusson: Lárus Ingólfsson
Staðarkona: Edda Kvaran
Jón Jónsson varðmaður/Etersráðið: Valdemar Helgason
Guðríður Jónsdóttir ráðskona: Ingibjörg Steinsdóttir
Sýknaður maður: Árni Tryggvason
Handalaus þjófur/Glæpamaður: Steindór Hjörleifsson
Maður sem misst hefur glæpinn: Helgi Skúlason
Sýkn kona: Steinunn Bjarnadóttir
Hrossastrákur: Hildur Kalman
Framleiðslukona: Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
Þulur: Andrés Björnsson ;

Hér má lesa fróðleik um Íslandsklukkuna.

Á undan flutningi Íslandsklukkunnar verða fluttir þættir um Halldór Laxness og verkið m.a.

Laugardagskvöldið 21. apríl kl. 19 er á dagskrá þáttur Péturs Gunnarssonar Laxness í nýlegu ljósi. Þátturinn er byggður á viðtölum við Halldór Laxness í blöðum og tímaritum á áttunda og níunda áratugnum. Þátturinn var frumfluttur árið 1992.

Laugardagskvöldið 28. apríl kl. 19 er á dagskrá þáttur Hauks Ingvarssonar Mín ævi hefur verið sögulaus. Velt er vöngum yfir Íslandsklukku Halldórs Laxness og fanga leitað víða. Meðal annars er rætt við listamenn sem komu að sýningu á Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu 2010, eða réttum 60 árum eftir frumflutning leikritsins. Þátturinn var áður á dagskrá í apríl 2010.


Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku